Tindur bókaútgáfa

Harmleikur í HéðinsfirðiHarmleikur í Héðinsfirði

„Harmleikur í Héðinsfirði“ heitir bók sem Tindur gefur út fyrir jólin. Fjallar hún um mannskæðasta flugslys sem orðið hefur á Íslandi, þegar Douglas vél Flugfélags Íslands fórst í hlíðum Hestsfjalls í Héðinsfirði 29. maí 1947 og með henni 25 manns, þar af 3 börn. Lítið hefur verið fjallað um slysið þar til nú en höfundur bókarinnar, Margrét Þóra Þórsdóttir, hefur viðað að sér ýmsum nýjum upplýsingum. Ljóst er að hér er á ferð átakanleg saga um grimm örlög.

Það var lágskýjað, þoka niður í hlíðar, þegar Douglas vél Flugfélags Íslands, TF-ÍSÍ, fórst í hlíðum Hestsfjalls í Héðinsfirði 29. maí 1947. Vélin var á leið frá Reykjavík til Akureyrar þegar slysið átti sér stað. Um borð voru 25 manns, 21 farþegi, þar af þrjú börn og 4 í áhöfn. Flestir farþegarnir voru í blóma lífsins, einn sá elsti 48 ára, Garðar Þorsteinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Veðurskilyrði fyrir leit voru óhagstæð en í sólarhring beið öll þjóðin milli vonar og ótta þar til hin grimmu örlög komu í ljós. Enginn komst lífs af úr þessu hörmulega slysi sem enn í dag er mesta flugslys sem orðið hefur á Íslandi. Í grárri þokunni við Héðinsfjörð brustu margar framtíðarvonir. Margrét Þóra Þórsdóttir blaðamaður rekur hér söguna sem aldrei áður hefur verið skráð jafn ítarlega, enda hafa komið fram nýjar upplýsingar sem ekki lágu á lausu. M.a. er komin í leitirnar lýsing læknisins sem kom að slysinu og viðtal við leitarmenn í leiðangrinum þegar líkin fundust.

Í bókinni verður þessi saga rakin. Stuttlega verður fjallað um flugsamgöngur á Íslandi á þessum tíma en þær voru þá að ryðja sér til rúms og mikil bjartsýni ríkjandi. Fjallað verður um örlagaríka flug norður í land og viðbrögð þegar vélin kom ekki fram á tilsettum tíma. greint verður frá leit að vélinni, björgun á vettvangi og atburðum sem á eftir fylgdu. Reynt er að varpa nokkru ljósi á farþega sem í vélinni voru, líf þeirra og störf, og þá verður sérkafli um Maríu Jóhannsdóttur, nú aldraða konu á Akureyri, en hún ætlaði með flugvélinni norður. Einkennileg tilviljun virðist hafa ráð því að svo varð ekki.

Kappkostað er að birta sem mest af ljósmyndum frá þessum atburði, frá slysstað og eins við þær athafnir sem á eftir fylgdu. Margar myndir í bókinni hafa aldrei birst áður opinberlega, bæði af slysstað og frá minningarathöfnum og útförum.

Margrét Þóra Þórsdóttir er fædd á Akureyri 19. apríl 1961. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1981. Stundaði nám í félags- og fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands og lauk BA-prófi 1988. E að ljúka MA-námi í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Starfaði á Degi á Akureyri frá 1983 til 1989, var blaðamaður á Morgunblaðinu frá 1. mars 1989 til haustsins 2006. Blaðamaður á Bændablaðinu 2006-2007. Er nú lausamaður, vinnur m.a. fyrir Bændablaðið og fleiri blöð.

ISBN: 978-9979-653-29-5
160 bls.
Verð: 4.990 kr.

Til baka


Bókaútgáfan Tindur
Skrifstofa: Lerkilundur 32, Akureyri
Símar: 773 7300
Dreifing: Fiskislóð 75, 101 Reykjavík
Símar: 773 7300