Björn Þorláksson sendir frá sér bókina HEIMKOMAN nú fyrir jólin. Björn er landsþekktur fréttamaður sem starfaði árum saman fyrir dagblöð, RÚV og Stöð 2. Hann missti vinnuna í upphafi kreppu og þurfti þá að endurskoða gildismat sitt og að sumu leyti að læra að lifa upp á nýtt. Afraksturinn er meinfyndin hrakfallasaga sem spyr stórra spurninga.
Viðtal við Björn í Kastljósi þann 28. október 2009 er hægt að skoða á þessari slóð:
Bókaútgáfan Tindur hefur gefið út Heimkomuna eftir Björn Þorláksson, skáld og fréttamann. Þetta er fimmta bók höfundar, sjálfsævisöguleg lýsing á þeim breyttu aðstæðum sem höfundur varð að takast á við í kjölfar hrunsins í fyrrahaust.
Björn var í hópi karlmanna sem hafa fram til þessa metið mannvirðingar sínar í störfum utan heimilisins og fannst honum því vegið að karlmennsku sinni og fleiri gamaldags gildum þegar hann missti vinnuna. Maðurinn sem hafði þrifist best í beinum útsendingum þurfti nú að hundskast inn á heimilið og taka þar upp framandi iðju líkt og að annast ársgamalt barn sitt allan daginn, sjá um uppvaskið, þvottinn, sálusorgirnar, tengslin, baksturinn, bleiuskiptin, fjölskyldusamskiptin gervöll og allt það sem alvöru karlmenn forðast eins og heitan eldinn.
En afraksturinn varð óvæntur og ríkulegur og breytti viðhorfi höfundarins til frambúðar. Útkoman er frábær bók sem á erindi við öll heimili landsins.
Þetta er lítil bók með stórt hjarta.
Frásögnin er mjög lifandi, hlý og glettin, með alvarlegan undirtón þannig að hún verður aldrei léttvæg. Ætti að vera skyldulesning allra pilta í framhaldsskóla, kúrsinn gæti heitið Karlmennska 103. Súsanna Svavarsdóttir, rithöfundur.
Hægt er að ná sambandi við höfund í síma 461-2432 og með því að senda póst á netfangið bthorlaksson@simnet.is.