Gerðu besta vininn betri - fyrsta íslenska hundaþjálfunarbókin
ISBN 978-9979-9767-8-3 Bókin er öll prentuð í lit. Ljósmyndir: Heiða.is
Heiðrún Villa hefur allt sitt líf haft mikla ástríðu af hundaþjálfun og atferlisfræði, og hjálpað mörgum hundaeigendum við að þjálfa hunda sína og að takast á við hvers kyns vandamál. Jákvæðni, þolinmæði og yfirvegun eru einkunnarorð hennar í þjálfun og með gráðu í atferlisfræði tekur hún opnum örmum á öllum þeim vandamálum sem kunna að koma fram hjá hundum og kennir eigendum að takast á við þau með opnum huga. Þessi bók er ætluð öllum þeim sem eiga hund eða eru að hugsa um að bæta hundi inn í líf sitt. Einlæg og skemmtilega skrifuð bók sem gefur nýja sýn á hvers vegna hundar eru hluti af lífi okkar. Í bókinni eru fjölmargar æfingar sem styrkja samband milli þín og hundsins og ýmis algeng vandamál tekin fyrir. Auk þess fæst innsýn inn í huga hunds og opnar bókin augu fólks á því hvernig hundurinn getur haft jákvæð áhrif á lífið og okkur sem manneskjur.
GERÐU BESTA VININN BETRI er fyrsta íslenska hundaþjálfunarbókin. Þetta er bók sem enginn hundaeigandi má láta fram hjá sér fara.
Verð 3.990 kr. Til baka |