28. júní 2010 - kl. 20:07 Áhrifarík ástarsaga Enzo segir frá
Þetta er saga af fjölskyldu. Pabbinn heitir Dennis. Líf hans snýst um kappakstur og kappakstursbíla, enda er hann góður ökuþór. Mamman heitir Eva og er viðkvæm, sérstaklega eftir að hún verður ólétt að Zoe. En eftir fæðinguna veikist Eva alvarlega. Enginn veit þó enn um þennan sjúkdóm - nema Enzo, hundurinn á heimilinu, því hann skynjar margt sem mannfólkið gerir ekki. En Enzo á erfitt með að gera sig skiljanlegan á mannamáli. Hvernig getur hann sagt þessari ungu fjölskyldu að Eva sé dauðvona? Getur hann varað þau við? Sjálfur er hann gamall og veikur og segir þessa hjartnæmu og mögnuðu sögu áður en hann sofnar svefninum langa.
Meðmæli frægra rithöfunda:
Þessi bók hefur svo margt, ást og harmleik, reiði og endurlausn, en umfram allt hundinn Enzo. Þessi gamla sál getur kennt okkur mannfólkinu ótal margt um okkur sjálf. Ég gersamlega féll fyrir þessar bók. -Sara Gruen, höfundurinn bókarinnar Vatn handa fílum,
Ég get ekki hætt að hugsa um sumar bækur sem ég læ; Enzo er ein af þeim. -Jodi Picoult, rithöfundur. Til baka |