07. júní 2010 - kl. 11:37 Fuglar og fólk á Ítalíu Ljóðabók fyrir ferðamenn
Í þessari bók tekur lesandinn sér ferð á hendur um landið hlýja, Ítalíu, þar sem saga aldanna liggur við hvert fótmál. Taormina, Tropea, Pizzo, Matera, Rómaborg, Montepulciano, Montalcino, Cortona, Chianti, Borgo di Buggiano, Viareggio; allt eru þetta viðkomustaðir í ferðinni, en einnig vínekrur og baðstrendur í Toscana-héraði. Í „borginni eilífu“ er lesandinn leiddur inn í mikilfenglegar kirkjur og kapellur, höfuðstöðvar hins rómversk-katólska heims, þar sem klerkar og kardínálar, munkar og nunnur, englar og dýrlingar, gyðjur og barbarar, ferðamenn og fuglar eru í aðalhlutverkunum. Þess á milli sest hann á nokkur elstu kaffihús heims þar sem páfinn „býr í næsta húsi“ og blómasalar stunda nótulaus viðskipti við elskendur frá öllum heimshornum.
„Fuglar og fólk á Ítalíu“ lætur engan fagurkera ósnortinn. Hún er veisla í farangri þeirra sem sækja Ítalíu heim - og kærkomin leiðsögubók um eitt söguríkasta og merkasta land heims.
Ljóðin eru ort á árunum 2008-2009 þegar höfundur ferðaðist eftir landinu endilöngu um eins árs skeið.
-
32hann ætlar að blása í kvöld segir hún gamla lágvaxna konan á kaffihúsinu á Via Liberta
og vefur þéttar að sér sjalinu og hryllir sig
87 hann býr svo til í næsta húsi páfinn og hérna áður fyrr kom hann oft í veitingahúsið da Roberto og þótti hin rómverska matargerð góð en eftir að hann fékk nýja starfið hefur hann ekkert sést segir þjónninn og hristir höfuðið Til baka |