|
 |
30. maí 2010 - kl. 15:33 Góður Drekahellir Fjórar stjörnur í Morgunblaðinu
Drekahellir í Vatnajökli - Hafdís Ósk Sigurðardóttir - Tindur - 4 stjörnur eftir Ingveldi Geirsdóttur hjá Morgunblaðinu. Hér er á ferðinni ekta íslensk ævintýrasaga í anda Enid Blyton. Gunnar og Krissi eru níu ára og bestu vinir. Eins og börn á þessum aldri hafa þeir áhuga á ævintýrum. Það hleypur aldeilis á snærið hjá þeim þegar þeim býðst að fara saman í sveitaferð til ömmu og afa Gunnars, fara á hestbak og í hellaskoðun þar sem þeir hitta dreka og komast til Klakaborgar sem er í miðjum jökli. Bókin er myndskreytt hóflega af Rósu Matt, myndirnar eru svarthvítar og virka oftast vel, sérstaklega af íbúum Klakaborgar, en stundum eru þær of dökkar og verða fyrir vikið ekki nógu skýrar. Drekahellir í Vatnajökli er vel skrifuð saga og spennandi og ætti að hæfa vel börnum á aldrinum 6-12 ára sem hafa gaman af drekum, hestum og ævintýrum. Bókin fær ímyndunaraflið til að fara á flug og áður en lesandinn veit af fylgir hann Gunnari og Krissa eftir í ævintýraförinni jafnspenntur og þeir.
Til baka | |
|
|