|
 |
|
|
|
12:51 |
02. sep. 2010 |
Huxarinn
Kennslubók í jafnréttisfræðslu
Tindur hefur gefið út bók sem heitir HUXARINN og er verkefnabók í jafnréttisfræðslu ætluð unglingastigi grunnskólans. Markmið bókarinnar er að skapa samræður milli nemenda og kennara byggðar á jafnréttisgrundvelli, virðingu og virkri hlustun. Höfundur er Íris Arnardóttir, námsráðgjafi við Hörðuvallaskóla í Kópavogi. Hægt er að panta bókina beint frá Tindi í síma 773 7300 eða í tölvupósti: tindur@tindur.is |
|
20:07 |
28. jún. 2010 |
Áhrifarík ástarsaga
Enzo segir frá
Tindur hefur gefið út áhrifaríka ástarsögu sem heitir einfaldlega ENZO. Er hún eftir bandaríska rithöfundinn Garth Stein en bókin hefur setið á metsölulistum New York Times og Wall Street Journal í samfellt tvö ár. Hér er um að ræða hjartnæma sögu um ást og dauða en það er hundurinn Enzo sem segir frá lífi sínu með Dennis og Evu og dóttur þeirra Zoe litlu.
Bók sem óhætt er að mæla með í sumar. |
|
11:37 |
07. jún. 2010 |
Fuglar og fólk á Ítalíu
Ljóðabók fyrir ferðamenn
Tindur hefur gefið út ljóðabókina Fuglar og fólk á Ítalíu eftir Jón Pálsson, guðfræðing og viðskiptafræðing, sem lengi hefur verið hugfanginn af ítalskri menningu. Bókin fjallar um fjóra staði á Ítalíu, Taormina, Tropea, Róm og Toscana. Bókin er kjörinn lestur fyrir ferðamenn og alla Ítalíu- og ljóðaunnendur. |
|
15:33 |
30. maí 2010 |
Góður Drekahellir
Fjórar stjörnur í Morgunblaðinu
Morgunblaðið birti á dögunum umfjöllun um barnabókina DREKAHELLIR Í VATNAJÖKLI eftir Hafdísi Ósk Sigurðardóttur sem Tindur gaf út fyrir síðustu jól. Gefur Morgunblaðið bókinni 4 stjörnur, líkir henni jafnvel við bækur eftir Enid Blyton, en það er Ingveldur Geirsdóttir sem ritar dóminn, sem hljómar svo sem leyfi foreta: |
|
|
|
Til baka | |
|
|