Úlpa - Jahiliya
Úlpa var stofnuð árið 1999 og skipa þessir hljómsveitina: Magnús Leifur Sveinsson (söngur, gítar), Bjarni Guðmann Jónsson (gítar og hljóðgervill), Magnús Árni Öder (gassi) og Bassi (trommur).
Fyrsta plata hljómsveitarinnar, Mea Culpa, kom út 2001 og var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna og komst á topp tíu vinsældarlistana bæði á Íslandi og í Danmörku. Úlpa fylgdi þessum vinsældum eftir með því að túra um Norðurlöndin og Bandaríkin; tróðu upp með böndum eins og Lake Trout og Blonde Redhead.
Attempted Flight By Winged Men kom út á Íslandi árið 2005 og ári síðar í Þýskalandi, þar sem fyrirtækið Nordic Notes annaðist útgáfuna. Enn var túrað um Norðurlöndin með viðkomu í Þýskalandi, Austurríki og Bandaríkjunum. Úlpa hefur ennfremur spilað á Englandi og í Færeyjum
Myndbandið við titillag plötunnar var sýnt á fjölmörgum stuttmyndahátíðum um allan heim. Það var Dögg Mósesdóttir sem gerði myndbandið.
Ivan Zacharias valdi lagið Yeah That´s Right fyrir AIDS herferðina á MTV.
Þriðja plata Úlpu, Jahiliya, kemur út í 19. nóvember 2009 en lag af plötunni, Camel, er þegar komið í spilun.
Og hér er lagalistinn í réttri röð:
- Royal Reccooler
- Jahiliya
- Camel
- MG
- Skógarnir
- Francisco
- J1h4d
- Anunnaki
- Bravo
Úlpa á MySpace: www.myspace.com/ulpa
Til baka |