Tindur bókaútgáfa

Ástin fyrir lífið - HjónabandsbókinÁst fyrir lífið
- Hjónabandsbókin

Vilt þú gera þitt hjónaband betra? „Ást fyrir lífið“ er hjónabandsbók. 
Hún er ætluð fólki sem vill leggja í sjálfsnám og vinnu við eigið hjónaband. Lögð er áhersla á vinnu með dyggðir eins og þolinmæði og heiðarleika, tekið á mannlegum þáttum eins og sjálfselsku, afbrýðisemi, girnd og öfund, og lesandinn hvattur til að leysa ýmis verkefni sem eru til þess fallin að bæta hjónabandið. Bókin hentar jafnt hjónum sem og einstaklingum sem vilja bæta sambúð og sambönd.
Bókin hefur fengið mjög góðar viðtökur víða, m.a. í Bandaríkjunum og Þýskalandi.

Höfundar: Stephen og Alex Kendrick.
Þýðandi: Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni við Glerárkirkju á Akureyri

ISBN 978-9979-653-59-2

„Trúin hefur slíkan mátt að hún bifast ekki og gefur sannar leiðbeiningar sem krefjast þess að hver og einn skoði sjálfan sig og beri þannig ábyrgð á eigin þroska. Kærleikurinn er ekki einungis tilfinning heldur ákvörðun um það hvernig við ræktum okkur sjálf og samskipti við aðra. Í ljósi þess er ÁST FYRIR LÍFIÐ ekki einungis lesning fyrir þá sem eru í hjónabandi. Mér finnst hún eiga erindi við alla, sérstaklega á umbrota- og uppgjörstímum.“ - Hlín Bolladóttir, kennari. 

225 bls.
Verð: 3.990 kr.


Bókaútgáfan Tindur
Skrifstofa: Lerkilundur 32, Akureyri
Sími: 773 7300
Dreifing: Fiskislóð 75, 101 Reykjavík
Sími: 773 7300