Tindur bókaútgáfa

NektarmyndinNektarmyndin

Fjóla Lind er 14 ára, bráðum 15, flott og sjálfstæð stelpa. Valur er frægur ljósmyndari. Hann tekur myndir af fallegu landslagi og ungum stúlkum á laun. Hann tekur nektarmyndir af Fjólu Lind og þær birtast í vinsælu tímariti og er dreift á internetinu. Foreldrar Fjólu Lindar tryllast. Þau kæra sig ekki um að nakinn líkami dóttur þeirra sé fyrir allra augum, þó yngri bróður hennar, Benna litla, þyki það ekki leiðinlegt. Móðirin er miður sin og pabbinn gersamlega gengur af göflunum. Og Arnaldur unnusti hennar líka. En þegar Valur ljósmyndari finnst myrtur á sérlega ógeðfelldan hátt hefst atburðarás sem enginn hefði getað séð fyrir og erfitt er að sjá hvernig endar. Það er því verk að vinna fyrir unga lögguparið Róbert og Láru, nýliða í rannsóknarlögreglunni.

Nektarmyndin er mögnuð spennusaga um veruleikann eins og hann er í dag; klámið sem tröllríður heiminum; mennnina sem taka myndirnar, stúlkurnar sem sitja fyrir; og fólkið sem horfir á. Enginn getur verið öruggur um sig; engin móðir og enginn faðir. Heldur enginn unnusti. Hvers vegna taka menn myndir af stúlkum nöktum og hvers vegna sitja stúlkur fyrir?

ISBN: 978-9979-653-13-4
260 bls.
Verð 5.690 kr.

Til baka


Bókaútgáfan Tindur
Skrifstofa: Lerkilundur 32, Akureyri
Símar: 773 7300
Dreifing: Fiskislóð 75, 101 Reykjavík
Símar: 773 7300