Tindur bókaútgáfa

Dagbók Kidda klaufaDagbók Kidda klaufa

Kiddi er í barnaskóla en hvað getur hann gert? Hér kynnumst við þessum lífsglaða dreng sem er til í allt, þó flest mistakist. Bókin er sett upp eins og dagbók, línustrikuð með fyndnum teikningum á hverri síðu. Þetta er skemmtileg bók fyrir alla sem nenna ekki að lesa - og líka fyrir hina!

Bókin heitir „Diary of a Wimpy Kid“ á ensku og hefur verið á metsölulistum allra helstu blaða síðustu 3 árin. Alls hafa selst 15 milljón eintök af bókunum. Þriðja bókin um Kidda klaufa er að koma út í Bandaríkjunum á þessu hausti en von er henni á íslensku áður en langt um líður. Höfundurinn heitir Jeff Kinney og starfar sem forritari. Hann er orðinn sterkefnaður maður á metsölubókum sínum.

Kvikmynd eftir bókinni er væntanleg í kvikmyndahús um páskana 2010. Það er Fox sem framleiðir.

ISBN: 978-9979-653-35-6
220 bls.
3.690 kr.

Til baka


Bókaútgáfan Tindur
Skrifstofa: Lerkilundur 32, Akureyri
Símar: 773 7300
Dreifing: Fiskislóð 75, 101 Reykjavík
Símar: 773 7300